Wednesday, December 10, 2008

Viðtal

Hér er viðtal við mig um bókina.

Monday, December 8, 2008

Vestfirsk bókakynning

Miðvikudaginn 10. desember n.k. kl 20:30 verður Vestfirsk bókakynning í veitingahúsinu Catalinu í Hamraborg í Kópavogi. Þar verða kynntar og lesið úr þremur af þeim tólf bókum sem Vestfirska forlagið á Þingeyri gefur út fyrir þessi jól.

Önfirðingurinn Guðrún Jónína Magnúsdóttir kynnir bók sína “Birta – ástarsaga að vestan” sem er þriðja og síðasta bókin í þessari ritröð.

Harpa Jónsdóttir les úr bók sinni ”Húsið – Ljósbrot frá Ísafirði” sem er saga hússins að Hrannargötu 1 á Ísafirði en segir fyrst og fremst af fólkinu í kring um það og nánasta umhverfi.

Þá kynna Bílddælingarnir Jón Kr. Ólafsson, söngvari þar og Hafliði Magnússon, rithöfundur, bók Hafliða um lífshlaup Jóns Kr. “Melódíur minninganna.”

Jón Kr. Ólafsson er landskunnur söngvari og söng á sínum tíma með hljómsveitinni Facon á Bíldudal og allir þekkja lag þeirra “Ég er frjáls.”

Heyrst hefur að Bílddælingar í Reykjavík hafi smalað saman í hljómsveit í tilefni dagsins og að Jón Kr. taki lagið með sveitinni.

Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Friday, December 5, 2008

Ég er frjáls



Ég minni á upplesturinn á Selfossi í kvöld.

Á morgun ( laugardaginn 6. des.) er upplestur í eðal stórversluninni Klakki í Vík kl. 13. Þar les ég og líka Jón Kr. og Hafliði. Jón tekur lagið svo það er alveg ljóst að Mýrdælingar og nærsveitamenn mega alls ekki missa af þessu!

Thursday, December 4, 2008

Sunnlendingar athugið!
















Vestfirsk bókakynning

Vestfirðingar á Suðurlandi boða til bókakynningar í Bókakaffi á Selfossi föstudaginn 5. desember n.k. kl. 20:30. Þar verða kynntar og lesið úr þremur af þeim tólf bókum sem Vestfirska forlagið á Þingeyri gefur út fyrir þessi jól.
Önfirðingurinn Guðrún Jónína Magnúsdóttir á Hellu kynnir bók sína “Birta – ástarsaga að vestan” sem er þriðja og síðasta bókin í þessari ritröð.
Harpa Jónsdóttir í Vík í Mýrdal kynnir bók sína ”Húsið – Ljósbrot frá Ísafirði” sem er saga hússins að Hrannargötu 1 á Ísafirði en segir fyrst og fremst af fólkinu í kring um það og nánasta umhverfi.

Þá kynna Bílddælingarnir Jón Kr. Ólafsson, söngvari þar og Hafliði Magnússon, rithöfundur sem nú býr á Selfossi, bók Hafliða um lífshlaup Jóns Kr. “Melódíur minninganna.” Jón Kr. Ólafsson er landskunnur söngvari og söng á sínum tíma með hljómsveitinni Facon á Bíldudal og allir þekkja lag þeirra “Ég er frjáls.”

Stofnuð hefur verið sérstök hljómsveit vegna þessarar samkomu, “Vestfirska-Flóamannabandið” og mun Jón Kr. taka lagið með hljómsveitinni.

Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Thursday, November 27, 2008

Umsögn

Einar Jónsson ljósmyndari og blaðamaður skrifar afar fallega um bókina mína á vefsíðu sinni.

Thursday, November 20, 2008

Kaffikvöld

Í kvöld kl. 19:30 er Kaffihúskvöld í Grunnskóla Mýrdalshrepps í tilefni af degi íslenskrar tungu.
Þar mun ég lesa upp úr mínum verkum, báðum bókunum og öðrum smálegu.
Krakkar úr áttunda bekk lesa ljóð eftir mig og Magdalena syngur Við hafið eftir Björn Jónsson - sem er einmitt við texta eftir mig. Svo spila gítarhetjur úr tónlistarskólanum eitthvað skemmtilegt, 7. bekkur sér um gátuleik og 5. og 6. bekkur ætla að skreyta með málsháttum
Kaffi og kökur í boði (heimasætan var að baka með vinkonum sínum og kennurunum í allan gærdag) og ókeypis aðgangur. Allir velkomnir.

Monday, November 17, 2008

Komin!


My book, originally uploaded by Harpa J.

Alveg glóðvolg úr prentsmiðjunni!
Hún ætti að vera komin í búðir um land allt í dag eða á morgun.